14 maj 2008

Tennisolbogi

Eins og ég skrifaði fyrir nokkrum vikum byrjaði ég að æfa box. Og það er allveg frábært, maður slær og sparkar en fyrir tveimur vikum fór ég að finna til í olboganum en ég tók bara verkjatöflur og hélt áfram en í gær gat ég bara ekki slegið með hægri hendini, ég hef verið svo slæmur að ég hef varla getað lift kaffibollanum og í morgun gat ég varla keyrt skóla rútuna svo að ég pantaði tíma hjá lækninum og fór ég til hans eftir hádegi í dag. Það tók hann bara hálfa mínutu að greina mig. Ég hafði fengið tennisolboga og ég sem æfi box!!!! Og þá tók hann fram stóru sprautuna sína og stakk henni inn í olbogann á mér(það var þræl sárt)og gaf mér kortison og einkverja deyfingu. Hann sagði að þegar deyfingin færi myndi ég finna til. Það var rétt hjá honum, ég er að drepast en vonandi skánar þetta fljótlega. Hann vildi meina að svona gerist þegar fólk á MIÐJUM ALDRI tæki á þá kæmi svona kvillar eins og bréf með póstinum. Ég vildi nú meina að ég væri ekki svo gamall, þá spurði hann mig hvenær ég væri fæddur og þá fattaði ég. Ég er víst GAMALL:-( En þegar ég kíki í speigil þá sé ég bara ungan og stæltan strák:-) að vísu tveimur eða þremur kílóum of þúngur sem ég reini að burt með boxinu, en svona er lífið bara skuffelse.
Hej då

Garðurinn




Við Emil gerðum garðinn fínann núna um helgina og fengum við góða hjálp frá Piu, því að ég á erfitt að sjá munin á verðandi blómum og arfa og grasi í beðinu. Og við vorum bara ansi stoltir eftir að við vorum búnir, eins og sést hér á myndunum er garðurinn bara ansi fínn.