30 maj 2008

Tannleysi




Í gær misti Ellen fyrstu tönnini og svo er ein laus, Ólívía er ekki með neina lausa en hún er ekki fúl yfir því sem er nú ansi skrítið því að það á allt að vera eins.
Á morgum er stór dagur hér, dömurnar verða 6 ára. Þær eiga ansi erfitt með að bíða með að opna pakkana. Ólívía spurði í dag hvort hún mætti ekki opna einn pakka og atuga hvað væri í honum og svo gætum við lokað aftur og engin fengi að vita. ha ha.

1 kommentar:

Villi sa...

Fínt, nú getum við þekkt þær í sundur. Bara kíkja upp í þær ;-)